Umdæmisþingið í Mosfellsbæ 6. og 7. október n.k.

72. umdæmisþing Rótarý á Íslandi verður haldið í Mosfellsbæ dagana 6. og 7. október n.k. Félagarnir í Rótarýklúbbi Mosfellssveitar vonast til að sjá sem flesta rótarýfélaga og maka koma til þeirra í Mosfellsbæinn og sækja þingið. Ekkert verður til sparað til að gera heimsóknina skemmtilega og eftirminnilega. Dagskrá þingsins verður sambland af fróðleik og skemmtun ásamt hefðbundnum þingstörfum og er það von gestgjafanna að þinggestir njóti samverunnar vel. Forsetafrúin Eliza Reid verður einn af fyrirlesurum á þinginu. Kynningarblað umdæmisþingsins verður sent til dreifingar í klúbbunum um miðjan september. Lesa meira


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning