Rótarýdagurinn 6. maí 2017
Undanfarin tvö ár hefur verið haldinn sérstakur Rótarýdagur, þar sem klúbbarnir hafa verið með ýmsa viðburði sem tengdust þeim einkunnarorðum, sem umdæmisstjóri hafði sett fram og tileinkað deginum. "Ég legg áherslu á að klúbbarnir noti þennan dag til að kynna Rótarýhreyfinguna. Hvert er hlutverk hennar og tilgangur.
Það hefur löngum verið mörgum utanaðkomandi ráðgáta hvert er hlutverk Rótarý,“ segir Guðmundur Jens Þorvarðarson, umdæmisstjóri í ávarpi til klúbbanna. Lesa meira