Fréttir
  • Ljósmynd: Daníel Steingrímsson

17.5.2010

Nýr fundarstaður í Vestmannaeyjum

Rótarýklúbbur Vestmannaeyja hefur flutt fundi sína í Arnardrang, Hilmisgötu 11 og eru fundirnir sem fyrr á fimmtudögum kl. 18.30.

Ljósmynd: Daníel SteingrímssonHúsið Arnardrangur er eitt sögufrægasta húsið í miðbæ Vestmannaeyja. Húsið stendur við Hilmisgötu sem er í hjarta bæjarins gegnt ráðhúsinu.
Hilmisgata fær nafn sitt frá heimsókn Kristjáns tíunda Danakonungs, 25. júní árið 1921.
Gatan hafði þá ekkert nafn en gekk þó undir nafninu Tukthússtígur. Eftir að konungur gekk um götuna var ákveðið að kalla götuna Hilmisgötu, því hilmir merkir jú konungur. Húsið var áður læknisbústaður.

Húsið Arnardrangur var byggt árið 1928 og stendur við Hilmisgötu 11. Upphaflega var það hús Ólafs Ó. Lárussonar læknis en seinna heilsuverndarstöð. Heilsuverndarstöð hafði verið starfrækt í öðru húsnæði en árið 1954 keypti Vestmannaeyjabær Arnardrang og gerði að heilsuverndarstöð. Starfaði heilsuverndarstöðin í húsinu frá miðju ári 1955 til 30. maí 1971, þegar hún var flutt í nýja sjúkrahúsið.

Mikil starfsemi hefur verið í húsinu í gegnum árin. Tónlistarskóli Vestmannaeyja var þar um árabil áður en hann flutti í húsnæði Listaskóla Vestmannaeyja við Vesturveg, einnig var æfingaaðstaða Lúðrasveitar Vestmannaeyja. Þá voru A.A. samtökin með aðstöðu á jarðhæð hússins áður en þau fengu aðstöðu í núverandi húsnæði að Heimagötu 24.

Í Arnardrangi fer fram starfsemi Rauða Krossins og Lions-klúbbsins. Þessi félög hafa staðið að miklum breytingum og endurnýjunum og er húsið orðið allt hið myndarlegasta. Gamli stíllinn fær þó að njóta sín þrátt fyrir miklar endurbætur.

Heimild: Heimaslóð.