Fréttir

Konukvöld 2015.

Vel heppnað konukvöld.

Föstudaginn 29. maí héldu Rótarýmenn sinn árlega konufund en þá bjóða félagar mökum sínum með og eiga með þeim skemmtilega kvöldstund. Það var Klúbbnefndin sem bar hitann og þungann af skipulagningu og óhætt að segja að vel hafi til tekist. Farið var með rútu út á Hraun á Skaga og heimilisfólkið þar á bæ heimsótt.  Það var húsmóðirinn á bænum, Merete K. Rabölle sem tók á móti gestum og sagði þeim það helsta. ýmislegt bar á góma, dúntekja og hreinsun, ísbjarnarsögur, vargur ásamt hið títtnefnda  veðurfar, en frekar svalt var í veðri þegar gesti bar að garði. Að því loknu héldu menn áfram og komu síðan við á Skagaströnd þar sem stoppað var og kvöldverður snæddur. Magnús B. Jónsson, sveitarstjórinn Skagastrandar var gestur kvöldsins og sagði hann skemmtilegar sögur af mönnum og málefnum sem tengdust samfélaginu forðum.  Að því loknu var haldið yfir Þverárfjallið og heim á leið.