Fréttir

24.5.2010

Króm og leður

Séra Gunnar Sigurjónsson Rotaryfélagi úr Kópavogi

Mótorhjól og Rotary

Séra Gunnar Sigurjónsson Rotaryfélagi úr Kópavogi og prestur í Digranessókn mætti (mótor) hjólandi á fund til okkar og fræddi okkur um áhugamál sitt og Rotaryklúbb mótorhjólamanna innan Rotaryhreyfingarinnar á Íslandi.

Séra Gunnar hefur verið mikill áhugamaður um mótorhjólasportið og stendur reglulega fyrir messum sérstaklega ætluðum mótorhjólamönnum, en annan í Hvítasunnu er næsta þannig messa.

Líklegt er að telja að margir hafi horft löngunaraugum til Séra Gunnars þar sem hann renndi í burtu frá fundinum á gljáfægðum fáknum með tilheyrandi hljóðum.