Fréttir

28.2.2015

Frábærar viðtökur í Sóltúni þegar félagar úr Rótarýklúbbi Reykjavíkur héldu tónleika á Rótarýdeginum



Á vef Sóltúns-Hjúkrunarheimili segir frá vel heppnuðum tónleikum á Rótarýdaginn, þar sem íbúar, ættingjar þeirra og starfsfólk fengu góða heimsókn í Sóltún þegar þau Sigrún Hjálmtýsdóttir og Kjartan Óskarsson félagar úr RR, ásamt Hrefnu Eggertsdóttur, píanóleikari fluttu gestum frábæra tónlist.


Anna Birna Jensdóttir framkvæmdastjóri tók á móti félögum sínum úr Rótarýklúbbi Reykjavíkur og bauð þá og áheyrendur velkomna. Ágústa Guðmundsdóttir viðtakandi forseti klúbbsins flutti stutt ávarp og kynnti starfsemi Rótarý. Meðal gesta var Ester Guðmundsdóttir aðstoðarumdæmisstjóri Rótarý á Íslandi og fleiri Rótarýfélagar. Ágústa kynnti þau Sigrúnu Hjálmtýsdóttir söngkonu (Diddú), Kjartan Óskarsson klarinettleikara og Hrefnu Eggertsdóttur píanóleikara sem buðu upp á frábæra tónleika sem saman stóðu af vel samsettu lagaúrvali. “Tónlistarfegurðin lyfti áheyrendum upp í hæstu hæðir á þessum fallega laugardegi”, segir í tilkynningu frá Sóltúni. Að lokinni frábærri dagskrá færðu þær Ágústa og Anna Birna félögum sínum tónlistarfólkinu kærar þakkir fyrir hönd Rótarýklúbbs Reykjavíkur, áheyrenda og gesta fyrir þessa frábæru og gefandi heimsókn sem laðaði til sín fullan sal áheyrenda.