Heiðursfélagar
Á 43. fundi Rótarýklúbbs Reykjavíkur 23. maí tilkynnti forseti klúbbsins að stjórnin hefði kjörið þá Matthías Johannessen og Baldvin Tryggvason , heiðursfélaga klúbbsins. Báðir eiga þeir að baki langt og farsælt starf innan vébanda Rótarýklúbbs Reykjavíkur. Forseti afhenti þeim skjöl þessu til staðfestingar og minjagrip með áletrun og Rótarýmerkinu.
Matthías Johannessen gekk í klúbbinn 6. janúar 1965 sem fulltrúi fyrir starfsgreinina ritstjórn, hann er því búinn að vera félagi í rúmlega 47 ár.
Baldvin Tryggvason gekk í klúbbinn 12. desember það sama ár 1965 sem fulltrúi fyrir starfsgreinina sparisjóðir og hefur verið félagi í tæplega 47 ár.
Klúbbfélagar risu úr sætum og klöppuðu þeim Matthíasi og Baldvin lof í lófa.