Fréttir
  • Nýir heiðursfélagar. Jón, Magnús og Hjalti

17.4.2011

Nýir heiðursfélagar Rótarý Reykjavík

Á stjórnarfundi hinn 6. apríl sl var einróma samþykkt að leggja til við klúbbfélaga að Jón H. Bergs, Magnús Magnússon og Hjalti Geir Kristjánsson yrðu kjörnir heiðursfélagar Rótaryklúbbs Reykjavíkur og bættust í hóp heiðursfélaga okkar ásamt þeim Haraldi Sveinssyni og Jónasi H. Haralz.


Jón H. Bergs varð félagi í Rótaryklúbbi Reykjavíkur þann 22. apríl 1959, hann var forseti klúbbsins starfsárið 1971-1972 og hlaut Paul Harris viðurkenningu klúbbsins 14.apríl 1993.


Magnús Magnússon varð félagi í Rótaryklúbbi Reykjavíkur þann 7. mars 1962, hann var forseti klúbbsins starfsárið 1978-1979 og hlaut Pall Harris viðurkenningu klúbbsins 16.apríl 1994.


Hjalti Geir Kristjánsson varð félagi í Rótaryklúbbi Reykjavíkur þann 24. júní 1964, hann var forseti klúbbsins starfsárið 1970-1971 og hlaut Paul Harris viðurkenningu klúbbsins 3. maí 1995.