Fréttir

30.12.2008

Fjölbreytt starfsemi í Rótarýklúbbi Eyjafjarðar

Gestir klúbbsins úr ýmsum stéttum þjóðlífsins

Rótarýklúbbur Eyjafjarðar kom saman að loknu sumarleyfi 12. ágúst sl. Fundir eru haldnir á Hótel KEA alla þriðjudaga kl. 18:15 og standa jafnan til kl. 19:30. Í stjórn klúbbsins sitja Helgi Vilberg, forseti, Stefán Friðrik Stefánsson, ritari, og Eiður Guðmundsson, gjaldkeri.

Mörg fróðleg erindi hafa verið haldin á starfsárinu í klúbbnum og til klúbbsins hafa komið góðir gestir. Fluttir hafa verið fyrirlestrar um t.d. forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, stöðu efnahagsmála á örlagatímum þjóðarinnar, ljósmyndun sem listgrein og Afríkuferð til Asmara í Eritreu. Meðal gesta á árinu eru Ólöf Nordal, alþingismaður, Kristín Aðalsteinsdóttir, prófessor, Jakob Möller, fyrrum yfirmaður kærudeildar Mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Genf og Lára Stefánsdóttir, varaþingmaður og fjarnemandi í ljósmyndun við Academy of Art University í San Fransisco.

6. september sl. bauð Helgi Vilberg, forseti klúbbsins og skólastjóri Myndlistaskólans á Akureyri, klúbbfélögum til sín í skólann - hann var settur í þeirri viku eftir endurinnréttingu í kjölfar eldsvoða síðla júnímánaðar. Buðu Helgi og Soffía Sævarsdóttir, eiginkona hans, upp á máltíð að lokinni skoðunarferð um skólann, þar sem Helgi fræddi rótarýfélaga um starf skólans fyrr og nú. Ellen Ingvadóttir, umdæmisstjóri, kom í heimsókn síðla nóvembermánaðar og jólafundur var haldinn 16. desember sl. Hefð er fyrir því að mökum sé boðið á jólafundi.

Starfið í Rótarýklúbbi Eyjafjarðar er því fjölbreytt á þessu starfsári og fundirnir verið skemmtilegir og fjölbreyttar umræður yfir borðhaldinu. Heimasíða félagsins á vef Rótarý hefur einnig verið nýtt og er stefnt að því að nota hana mjög vel til að kynna starf klúbbsins.


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning