Fréttir

1.12.2008

Hátíðartónleikar Rótarý

Miðar seldir á midi.is

Tónleikarnir verða í Salnum i Kópavogi föstudaginn 9. janúar kl. 20 og laugardaginn 10. janúar kl. 16.

Jónas Ingimundarson hefur að venju valið efnisskrá tónleikanna og til liðs við sig hefur hann fengið Þóru Einarsdóttur, óperusöngkonu, sem á glæsilegan söngferil í óperuhúsum erlendis.

Efnisskráin spannar vítt svið þar sem fegurð, kímni og glæsileiki ræður ríkjum og víst er að enginn verður svikinn af flutningi þeirra.

Melkorka Ólafsdóttir flautuleikari, sem hlaut hinn eftirsótta styrk Tónlistarsjóðs Rótarý fyrir tæpu ári, kemur nú einnig fram á tónleikunum - en hún var bundin erlendis við tónleikahald þegar síðustu tónleikar voru haldnir.

verð er 3.500 kr.

Miðar verða seldir á netinu og verður opnað fyrir miðasöluna fimmtudaginn 4. des. kl. 10. Smellið hér

Síðast en ekki síst mun styrkþegi ársins 2009 flytja tónleikagestum list sína en hann hefur verið valinn úr hópi fjölmargra efnilega tónlistarmanna.  Samkvæmt venju verður nafn hans ekki opinberað fyrr en á sjálfum tónleikunum, þegar hann veitir styrknum viðtöku úr hendi umdæmisstjóra, Ellenar Ingvadóttur.

Þess er vænst að Rótarýfélagar fjölmenni nú sem fyrr ásamt mökum sínum og gestum - og fylli húsið báða dagana enda mun hátíðleikinn og gleði okkar góða félagsskapar ríkja  á báðum tónleikunum.

Samkvæmt venju verður boðið upp á freyðivín og kransakökur í hléi og er þess vænst að fólk komi prúðbúið til hátíðarinnar. Gæsla verður í fatageymslu. Sjá nánar undir FRÉTTIR.


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning