Fréttir

8.9.2008

Styrkur Tónlistarsjóðs Rótarý

Umsóknarfrestur til 10. október

Tónlistarsjóður Rótarý á Íslandi auglýsir eftir umsóknum um styrk.

Tilgangur sjóðsins er að veita ungu tónlistarfólki sem skarað hefur fram úr á einhverju sviði tónlistar viðurkenningu í formi fjárstyrks til frekara náms.

Styrkurinn verður veittur í janúar 2009 og verður að upphæð kr. 500.000.

Umsóknarfrestur er til 10. október næstkomandi

Umsóknum skal skilað til skrifstofu Rótarýumdæmisins, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Netfang: rotary@simnet.is.

Rótarýfélagar eru hvattir til að vekja á styrkveitingum sjóðsins hjá efnilegu tónlistarfólki sem þeir telja að komið geti til greina við veitingu viðurkenningar.


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning