Fréttir

9.6.2017

Golfmót Rótarýumdæmisins 2017

Golfmót Rótarýumdæmisins á Íslandi sem fram fer á hverju ári verður að þessu sinni í umsjá Rótarýklúbbsins Reykjavík – Árbær og verður mótið haldið á Húsatóftavelli við Grindavík föstudaginn 23. júní 2017.

Eins og venjan er verður keppt í punktakeppni með forgjöf hjá einstaklingum og sveitum. Þar að auki verður keppt um besta skor (brutto) einstaklinga. Einnig keppt um högg næst holu á öllum par 3 brautum auk þess sem dregið verður úr skorkortum í lokin.

Aðalkeppnin er því þríþætt:

   1. Höggleikur án forgjafar, besta skor. Karlar leika á gulum teigum en konur af rauðum. Ein verðlaun eru í boði þ.á.m. farandbikar.

   2. Punktakeppni með forgjöf. Einstaklingskeppni. Þrenn verðlaun fyrir konur og þrenn fyrir karla.

   3. Punktakeppni með forgjöf. Klúbbakeppni þar sem besta skor tveggja rótarýfélaga í hverjum klúbbi gildir. Þrenn verðlaun  þ.á m. farandbikar.

Makar rótarýfélaga eru velkomnir og hafa þeir möguleika á að keppa til allra verðlauna utan sveitarkeppninnar.

Mæting er kl. 09:00 árdegis þar sem menn greiða þátttökugjald oþh. en kl. 10:00 stundvíslega hefst golfleikurinn og verður ræst út samtímis á öllum teigum. Röðun í holl og á teiga, keppnisfyrirkomulag,  staðarreglur o.fl. verður greint frá áður en ræst verður út. Nefndin mun raða í holl og leitast m.a. við að blanda úr mismunandi rótarýklúbbum. Hámarksforgjöf karla verður 24 en hjá konum 28.

Að loknum leik verður sameiginlegur málsverður sem er innifalinn í verðinu. Þá verður verðlaunaafhending, dregið úr skorkortum og næsti klúbbur valinn til að halda mótið árið 2018.

Rótarýklúbbar eru beðnir um að upplýsa rótarýfélaga um mótið og hvetja til góðrar þátttöku.

Nánari upplýsingar veita þeir sem eru í undirbúningsnefndinni frá Rkl. Rvk.-Árbær:


Steinar Friðgeirsson, gsm. 894-4929, netfang: steinar@red.is                                                          

Ragnar Pálsson, gsm. 772-8130, netfang: rpfjallalind@gmail.com

Skúli Jónsson, gsm. 867-2212, netfang: jonssonskuli@gmail.com

Helgi Þór Axelsson, gsm. 825-0021, netfang: helgi@virka.is

            

Skráning fer fram á www.golf.is en vinsamlegast látið einn ofangreindra félaga úr undirbúningsnefndinni einnig vita með upplýsingum um úr hvaða klúbbi viðkomandi þátttakandi kemur. Látið okkur einnig vita ef þið eruð með golfbíl og þá einnig hverjir verða á honum. Þetta skiptir máli við niðurröðun í hollin.

Meðfylgjandi myndir voru teknar á golfmóti Rótarý 2016.


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning