Fréttir

22.6.2015

Rkl. Seltjarnarness veitti tónlistarviðurkenningu

Ungur Seltirningur, Friðrik Guðmundsson, sem í vor lauk framhaldsnámi í píanóleik við Tónlistarskóla Seltjarnarness, hlaut á þjóðhátíðardaginn 17. júní KALDALÓNSSKÁLINA - Tónlistarviðurkenningu Rótarýklúbbs Seltjarnarness í minningu Selmu Kaldalóns tónskálds (1919-1984).  

Viðurkenningin var veitt í fyrsta skipti við athöfn í lok þjóðhátíðarguðþjónustunnar í Seltjarnarneskirkju. Guðmundur Snorrason, forseti Rótarýklúbbsins, afhenti skálina, ásamt heiðursskjali. Ólafur Egilsson, form. æskulýðsnefndar klúbbsins, flutti einnig ávarpsorð.Við afhendingu tónlistarviðurkenningarinnar: Friðrik Guðmundsson, Guðmundur Snorrason og Ólafur Egilsson.

Þá lék Friðrik á píanó fallegt verk eftir sjálfan sig sem hann nefnir "Skammdegi" og tekur um 5 mín. í flutningi. Var því afar vel tekið af viðstöddum.

Í ávarpi sínu við afhendingu Kaldalónsskálarinnar sagði Guðmundur Snorrason m.a.:

"Rótarýhreyfingin hefur það að markmiði að vinna að friði og sátt manna á meðal og hafa uppbyggjandi og jákvæð áhrif á umhverfið. Í þessum anda hefur Rótarýklúbbur Seltjarnarness meðal annars reynt að hvetja ungmenni hér í nærsamsamfélaginu til dáða með því meðal annars að veita viðurkenningar til þeirra sem skara fram úr í íþróttum og fyrir góðan námsárangur og prúðmannlega framgöngu við skólaslit grunnskólans á vorin. Nú fannst stjórn Rótarýklúbbs Seltjarnarness mál til komið að beina sjónum sérstaklega að því öfluga starfi sem unnið er í Tónlistarsklólanum hér á Nesinu."

KALDALÓNSSKÁLIN er fallegur farandgripur sérstaklega smíðuð í þessum tilgangi af Ásgeiri Reynissyni gull- og silfursmið, og er stefnt að því að hún verði framvegis veitt árlega fyrir framúrskarandi árangur í tónlistarnámi. Er þessi viðurkenning til marks um aukið starf Rótarýhreyfingarinnar til uppörvunar og stuðnings við ungu kynslóðina.

Friðrik hóf ungur að árum píanónám í Tónlistarskóla Seltjarnarness undir handleiðslu Aðalheiðar Eggertsdóttur píanókennara og lauk þar framhaldsnámi nýverið með lofsamlegum vitnisburði. Síðastliðið ár hefur hann einnig verið í tónsmíðanámi í Listaháskóla Íslands, en 2-3 ár eru síðan hann hóf að semja tónverk m.a. fyrir Stúdentaleikhúsið í sýningarnar "Stundarfrið" og " Mig". Þá hefur verk eftir Friðrik, "Áráttuhegðun", verið leikið á tónleikum í Listaháskólanum. - Friðrik varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 2013.

Ummæli Kára Húnfjörð Einarssonar, skólastjóra Tónlistarskóla Seltjarnarness, um Friðrik eru afar lofsamleg. Hann segir stjörnu hans í skólanum hafa risið stöðugt fram til námslokanna, þegar hann standi fremstur meðal jafningja. Síðustu tvö til þrjú árin hafi Friðrik lagt nótt við dag til að undirbúa lokapróf sitt; alla daga, allar helgar, alla frídaga hafi hann komið í skólann til æfinga. Eljan, seiglan og viljinn hafi drifið hann áfram, og við það hafi hann fengið dyggan stuðning kennara síns. - Á framhaldsprófstónleikum Friðriks í sal skólans nýlega léku tveir efnilegir skólafélagar hans, Bergur Þórisson básúnuleikari og Björgvin Hjálmarsson saxófónleikari, með honum verk eftir Friðrik, sem ber heitið "Getum við ekki bara..." og er í þremur köflum. Voru undirtektir hinar ágætustu.

KALDALÓNSSKÁLIN er, eins og fyrr segir, helguð minningu Selmu Kaldalóns tónskálds sem bjó og starfaði á Seltjarnarnesi um árabil. Gefin hafa verið út eftir hana 27 sönglög og hljómplata með lögum eftir hana og föður hennar Sigvalda Kaldalóns í flutningi kunnra listamanna. Selma var eiginkona Jóns læknis og varabæjarfulltrúa Gunnlaugssonar, forgöngumanns um stofnun Rótarýklúbbs Seltjarnarness og fyrsta forseta hans árið 1971; hann var síðar einnig umdæmisstjóri hreyfingarinnar.

Friðrik Guðmundsson ásamt aðstandendum, afkomendum Selmu Kaldalóns og fulltrúum Rkl. Seltjarnarness.


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning