Fréttir

25.1.2014

Rótarýklúbbur Sauðárkróks færði heilbrigðisstofnuninni ný húsgögn

Um 800 þús. krónur söfnuðust í átaki sem klúbburinn efndi til skömmu fyrir jól, þegar hann bauð Skagfirðingum til veislu. Að afloknum Rótarýfundi fimmtudaginn 23. janúar fjölmenntu félagar á Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki til að afhenda starfsfólki og vistmönnum húsgögn að gjöf.

Hinn 30. nóvember 2013 bauð  Rótarýklúbbur Sauðárkróks Skagfirðingum til ókeypis jólahlaðborðs. Um 600 manns mættu og nutu matar og skemmtunar í íþróttahúsinu á Sauðárkróki.  Þetta var hægt með öflugum stuðningi góðra fyrirtækja sem lögðu verkefninu lið. Alls söfnuðust um 800.000 krónur sem voru notaðar til að kaupa húsgögnin.
Eftirtalin fyrirtæki styrktu verkefnið og færir Rótarýklúbbur Sauðárkróks þeim bestu þakkir fyrir. Verkefnið hefði ekki verið framkvæmanlegt án þeirra stuðnings.
Fyrirtækin eru: Arion banki, Doddi málari, Dögun, Fisk Seafood, Grettistak, Hlíðarkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, KPMG, K-Tak, Landsbankinn, Lyfja, Nýprent, OK gámaþjónusta, Ólafshús, Rafsjá, Sauðárkróksbakarí, Skagfirðingabúð, Sparisjóðurinn, Steinull, Stoð ehf,  Sveitarfélagið Skagafjörður, Tengill, Vörumiðlun, Ölgerðin Egill Skallagrímsson


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning