Fréttir

15.9.2005

Umsóknarfrestur framlengdur

Umsóknarfrestur um styrk úr Tónlistarsjóði Rótarý hefur verið framlengdur til 1. október.

Tónlistarsjóður Rótarý á Íslandi auglýsir eftir umsóknum um styrk.

Tilgangur sjóðsins er að veita ungu tónlistarfólki sem skarað hefur fram úr á einhverju sviði tónlistar viðurkenningu í formi fjárstyrks til frekara náms. Styrkurinn verður veittur í janúar 2006 og verður að upphæð kr. 500.000.

Umsóknum skal skilað til skrifstofu Rótarýumdæmisins, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík, fyrir 1. október n.k. Netfang:rotary@rotary.is

 


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning