Fréttir

4.1.2007

Rótarýfélagi Vestlendingur ársins 2006

Bjarni Kristinn Þorsteinsson - ljósm.: Skessuhorn

Vestlendingur ársins 2006 er Bjarni Kristinn Þorsteinsson, slökkviliðsstjóri í Borgarnesi og félagi í Rótarýklúbbi Borgarness. Það er Skessuhorn ? fréttaveita Vesturlands sem veitir þessa viðurkenningu árlega, nú í 9. skiptið. Lesendur Skessuhorns sendu inn tilnefningar og fékk Bjarni Kristinn flest atkvæði, en alls fengu 38 einstaklingar tilnefningar.

Viðurkenninguna hlýtur Bjarni fyrir hönd allra þeirra sem þátt tóku í farsælu björgunar- og slökkvistarfi á Mýrum í mars á sl. ári og sem tókst einkar vel miðað við aðstæður sem líkja má við hamfarir. Uppúr stóð að fólki, fénaði og mannvirkjum var bjargað og talið er að gróður muni að mestu leyti jafna sig í tímans rás.

Í ítarlegu viðtali sem birtist við Bjarna Kristinn í Skessuhorni í dag segist hann einungis taka við viðurkenningunni fyrir hönd allra þeirra er þarna komu að málum, jafnt slökkviliðs- og björgunarmönnum, bændum, lögreglu, matráðum og öðrum sem lögðu hönd á plóg í þessum tveggja til þriggja sólarhringa slag við elda sem ógnuðu bæði mönnum, skepnum og mannvirkjum. Bjarni segir það af og frá að þessi heiður tilheyri honum einum.


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning