Fréttir
  • Friðarstyrkþegar Rótarý

29.2.2012

Friðarstyrkir Rótarý til háskólanáms 2013-2015

Umsóknarfrestur til 15. apríl

Rótarýsjóðurinn, Rotary Foundation, sem rekinn er af Alþjóða Rótarýhreyfingunni, mun veita allt að 60 styrki til tveggja ára meistaranáms skólaárin 2013-2015. Styrkirnir verða veittir til náms og rannsókna sem tengjast alþjóðasamstarfi og eflingu friðar í heiminum og eru ætlaðir fólki sem þegar hefur reynslu af alþjóðastarfi auk þess að hafa lokið fyrstu háskólagráðu.

Í þessu skyni hefur Rótarýsjóðurinn komið á samvinnu við sjö virta háskóla:

  • Universidad del Salvador, Argentínu
  • University of Queensland, Ástralíu
  • Duke University & University of North Carolina,
  • University of Bradford, Englandi
  • Uppsala University, Svíþjóð
  • International Christian University,

Styrkirnir, sem eiga að standa undir tveggja ára námskostnaði, eru alþjóðlegir samkeppnisstyrkir. Rótarýhreyfingin á Íslandi má senda eina umsókn. Val íslenska umsækjandans fer fram eftir ítarleg viðtöl og könnun á námsferli og störfum. Makar, afkomendur og makar afkomenda lifandi Rótarýfélaga geta ekki sótt um styrkinn. Tíu Íslendingar hafa fengið friðarstyrki frá því þeir voru fyrst veittir árið 2002. Sjá nánar hér.

Nánari upplýsingar um námið, háskólana og umsóknarskilmála er að finna á heimasíðu Rotary International HÉR. Einnig á Facebook síðu https://www.facebook.com/Rotarycenters

Umsóknareyðublaðið er að finna undir World peace fellowship. Einnig má nálgast upplýsingar á skrifstofu Rótarýumdæmisins rotary@rotary.is. Sími 568 2233 eða í síma 525 4818.

Þeir sem hafa hug á að sækja um styrk eru beðnir um að senda ítarlegt æviágrip og lýsingu á markmiði með framhaldsnámi fyrir 15. apríl til skrifstofu Rótarýumdæmisins, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík, merkt „Friðarstyrkur“.


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning