Fréttir
  • Ástralía, fáni

17.8.2011

25-40 ára? Viltu fara til Ástralíu? Frítt!

Einstakt tækifæri sem þú mátt ekki missa af

Starfshópaskiptanefnd (Group Study Exchange, GSE) undirbýr nú starfshópaskiptum við Rótarýumdæmi 9780 í Ástralíu. Hópurinn frá Ástralíu kemur til Íslands í október n.k. og tekur m.a. þátt í umdæmisþingi. Íslenski hópurinn fer til Ástralíu í mars 2012.

Hluti GSE hópsins 2004Auglýst er eftir þátttakendum og eru klúbbar hvattir til að benda á efnilega einstaklinga. Starfshópaskipti eru ætluð einstaklingum með góða menntun og a.m.k. tveggja ára starfsreynslu. Viðkomandi má ekki hafa nein tengsl inn í rótarýhreyfinguna, hvorki vera félagi eða tengjast rótarýfélaga nánum fjölskylduböndum því hugmyndin er að færa rótarýhugsjónina út til sem flestra. Fjórir einstaklingar fara og er ferðin þeim að kostnaðarlausu. Að auki fer reyndur rótarýfélagi með sem fararstjóri og tekur ferðin um 4 vikur. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni rotary.is.

Umsóknarfrestur er til 1. september og eru áhugasamir hvattir til að hafa samband við Birnu Bjarnadóttir Rkl. Borgum Kópavogi sem er formaður nefndarinnar á netfangið gse@rotary.is eða í síma 895 6500.

Sækja má umsóknareyðublað hér: Umsóknareyðublað GSE starfshópaskipti


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning