21.9.2010
Umdæmisstjóri plantar tré á Akureyri
Það er hefð fyrir því að umdæmisstjóri planti einu tré í Botnsreit sem er skógarreitur sem Rótarýklúbbur Akureyrar hefur verið með í ræktun síðan 1951 og þar er nú myndarlegur skógur.
Reiturinn hefur nú verið opnaður fyrir almenning og er verið að leggja göngustíga um reitinn. Bílastæði hafa verið malbikuð og rótarýfélagar í Rkl. Akureyrar hafa sett upp glæsilegt upplýsingaskilti við reitinn. Rótarýklúbbur Akureyrar fer árlega í lautartúr í Botnsreit þar sem félagar njóta útiverunnar og skemmta sér við söng, mat og drykk. „Það var virkilega ánægjulegt að verða þátttakandi í þessu skemmtilega verkefni þeirra Akureyringanna,“ segir Margrét Friðriksdóttir umdæmisstjóri sem plantaði tré í lundinn þeirra 17. september sl. en umdæmisstjóri er á ferð um landið að heimsækja rótarýklúbba.