Alþjóðlega æskulýðsráðstefna Rótarý, EEMA hefst á föstudag
Rótarýfélagar hvattir til þátttöku
Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er „Nemendaskipti framtíðarsýn.” Þessi kjörorð munu veita okkur leiðsögn þegar efla skal samstarf Rótarý og ungs fólks. Með því að efla samvinnu ungs fólks og Rótarý stuðlum við að hugsjón Rótarý um frið og skilning á milli þjóða. Þátttakendur eru frá 28 löndum og á þriðja hundrað en ráðstefnan er opin öllum rótarýfélögum og mökum þeirra.
Á forsendum þessara markmiða ræðum við nemendaskipti og hvernig þau má nota sem öflugt tæki til að auka skilning á mismunandi menningarheimum.
Eitt meginmarkmiða okkar er að hvetja Austur-Evrópu og Afríkulönd til þátttöku í nemendaskiptum hreyfingarinnar.
EEMA ráðstefnan er haldin árlega, Sviss 2010, Suður-Afríka 2011, Ungverjaland 2012 og Ítalía 2013. EEMA stendur fyrir Europe East Mediteranean Africa
Þetta er í fyrsta sinn sem Rótarýhreyfingunni á Íslandi hlýst sá heiður að halda alþjóðlega ráðstefnu. Þátttaka er kjörið tækifæri fyrir Rótarýfélaga á Íslandi til að kynna sér hversu stór þáttur nemendaskipti eru í hreyfingunni. Einnig tækifæri til að kynnast Rótarýfélögum frá hinum ýmsu löndum og mynda alþjóðleg tengsl sem er eins og áður er getið eitt af aðal markmiðum Rótarý.
Ráðstefnan verður haldin dagana 4.-6. september 2009 á Grand Hótel í Reykjavík.
Skráðir þátttakendur 17. ágúst voru 208 frá 28 þjóðlöndum og er enn að fjölga.
Dagskrá ráðstefnunnar má finna hér.
Sjá nánar um ráðstefnuna á www.EEMA2009.com.
Ráðstefnan er opin öllum rótarýfélögum og mökum þeirra.
Rótarýfélagar geta skráð sig á Rótarýskrifstofunni í síma 568 2233. Þátttökugjald er kr. 18.000 pr. mann, sem greiðist inn á reikning 0111-26-501444, kennitala: 610174 3969.
Innifalið í þátttökugjaldi eru ráðstefnugögn, einn kvöldverður, tveir hádegisverðir, kaffi, Gala kvöldverður. Þátttökugjald maka í Gala kvöldverði og makadagskrá er kr. 8.000.