Viðburðarík dagskrá Rótarýdagsins heppnaðist vel

Rótarýdagurinn var haldinn laugardaginn 24. febrúar. Rótarýklúbbar víða um land efndu þá til viðburða undir yfirskriftinni „Látum rödd Rótarý heyrast.“ Almenn kynning á störfum Rótarýhreyfingarinnar fór fram og klúbbarnir lögðu áherslu á framlag sitt til samfélagsþjónustu og kostum þess að starfa í góðum félagsskap innan Rótarý. Að þessu sinni var athyglinni einnig beint að málefnum ungs fólks með tilliti til ásóknar og áhrifa hinna öflugu og margslungnu samfélagsmiðla. 

Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning