Alþjóðaforseti Rótarý á Bessastöðum

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson tók á móti næsta alþjóðaforseta Rótarý Ian H.S. Riseley og Juliet eiginkonu hans á Bessastöðum í gærmorgun ásamt fleiri gestum. Þau hjónin eru Ástralir. Ian tekur við embætti alþjóðaforseta í júlí n.k. Á fimmtudag fóru þau í skoðunarferð um Suðurland ásamt þeim Guðmundi Jens Þorvarðarsyni, umdæmisstjóra og Knúti Óskarssyni, verðandi umdæmisstjóra, eiginkonum þeirra og nokkrum öðrum rótarýfélögum. Síðdegis í gær heimsóttu þau Alþingi og um kvöldið komu þau á almennan rótarýfund sem Rkl. Kópavogs hélt.


Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning