Konur rúmlega 25% rótarýfélaga á Íslandi
Af rúmlega 1,2 milljónum rótarýfélaga í heiminum eru 241.500 konur. Á Íslandi eru konur í dag 25,3% rótarýfélaga og fer hægt og rólega fjölgandi. Er Ísland í 38. sæti af þeim 110 löndum sem hafa 10 rótarýklúbba eða fleiri. Í efsta sæti trónir Mongólía með 52,6% konur. Í efri hlutanum má finna lönd eins og Indónesíu, Venúsúela, Egyptaland, Rússland, Kenýa, Suður-Afríku og Kanada en 22 lönd eru með meira en 30% hlutfall kvenna sem rótarýfélaga. Bandaríkin eru í 31. sæti með 27,7% og á undan Íslandi eru aðeins tvö Evrópuríki, Úkraína og Bosnía - Hersegóvína. Svíþjóð er í 40. sæti með 24,8%, Noregur í 73. sæti með 17,5%, Danmörk í 94. sæti með 12,7% og Finnland strax á eftir með 12,5%. Japan er í neðsta sæti (110.) með aðeins 5,2% hlutfall kvenna en á undan Japan má finna Indland, Lúxemborg, Belgíu, Austurríki, Þýskaland, Sviss og Slóvakíu.